18 ago 2011

Bókmenntasmiðja með Þórarni Eldjárn.


Minnismóttakan á Landakoti, félagið FAAS og listfræðingurinn Halldóra Arnardóttir, skipuleggja bókmenntasmiðju í samstarfi við Þórarinn Eldjárn, Myndlistarskóla Reykjavíkur og Þjóðarbókhlöðuna. Fyrirmyndin er sótt til Murcia á Spáni þar sem Lista- og menningartengdar smiðjur hafa verið notaðar sem hluta af meðferð en Halldóra var skipuleggjandi þeirra.
Markmið þessarar bókmenntasmiðju eru: að bæta líf og sjálfstraust sjúklingsins sem og fjölskyldna; að tengja þátíð og nútíð í gegnum tilfinningaminnið; stuðla að frekari gildum gegn fordómum gagnvart Alzheimers sjúkdómnum; kynda undir verkefni þar sem mismunandi kynslóðir vinna saman.

Smiðjan hefst á því að Þórarinn Eldjárn les söguna “Hvaðefsaga” úr bók sinni Alltaf sama sagan (2009). Í lok sögunnar skapast líflegar umræður milli rithöfundarins og sjúklinganna út frá efnivið sögunnar.
Í næstu fjórum tímum smiðjunnar taka myndlistarnemendurnir við og gerast verkfæri sjúklinganna til að segja frá minningum sínum og byggja upp söguþráð. Þeir hafa það hlutverk að gera a.m.k. eina teikningu hverju sinni, eins nákvæma eins og mögulegt er. Efnistökin eru fengin frá smásögunni: tengslum við FJALLIÐ (útsýni yfir á ..., smalamenska, berjamór, útilega, göngur), SAMGÖNGUR (ferðalög, vegir, ökutæki, jarðgöng og brýr) og 17. JÚNÍ HÁTÍÐARHÖLD (fjallkonan, veður, íslenski þjóðbúningurinn og fáninn, sjálfstæðisbaráttan).

Í lok hvers tíma leggur sjúklingurinn mat á afrakstur dagsins; tengls teikningarinnar og minningarinnar. Lokamarkmiðið er að sjúklingurinn hrópi: “já, það var svona!”
Í síðasta tíma smiðjunnar lesa sjúklingarnir upp sögurnar sínar við hlið Þórarins Eldjárns með aðstoð teikninganna. Áherslurnar hafa breyst, nú eru það þeir sem leika aðalhlutverkin.

No hay comentarios:

Publicar un comentario